Seestar S30 Plus snjallsjónauki
Seestar S30 Plus snjallsjónauki
Væntanlegur í byrjun desember
Kannaðu undur alheimsins með Seestar!
Seestar S30 Plus er snjallsjónauki með 30mm ljósop. Hentar áhugafólki á öllum aldri. Sjónaukinn er kjörinn fyrir alla fjölskylduna, fullkominn heima eða í sumarbústaðinn – og til að fylgjast með sólmyrkvum!
Sjónaukanum er stýrt með Seestar appinu fyrir snjallsíma og spjaldtölvur (ókeypis öpp, bæði fyrir iOS og Android). Seestar tekur myndir og/eða vídeó af fyrirbærinu sem þú beinir sjónaukanum að og myndirnar birtast í appinu. Hægt að nota að degi til líka til að taka myndir af næsta nágrenni.
Ekki er þörf á neinni þekkingu fyrir fram, hvorki á alheiminum né tækjabúnaði. Innbyggt Wi-Fi/Bluetooth og innbyggð hleðslurafhlaða.
Með sjónaukanum fylgir lítill carbon fiber þrífótur, taska og sólarsía með segli.
Hver er munurinn á S30 Pro og S30 Plus?
S30 Plus er ódýrari og einfaldari útgáfa af S30 Pro. Hann hentar því vel ungu áhugafólki og byrjendum sem eru ekki endilega að hugsa um að myndvinnslu eftir á – fullkominn fjölskyldusjónauki.
Veldu S30 Pro ef þú vilt meiri möguleika á að vinna stjörnuljósmyndir eftir á. S30 Pro hefur ögn víðara sjónasvið en S30 Plus.

Share
